Algeng hjólameiðsli

Reiðhjólaslysum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Fjölgunin skýrist að hluta af betri skráningu slysa en ekki síður af fjölgun reiðhjóla í umferð.
Sjúkraþjálfun AFL hvetur reiðhjólamenn til að fara varlega á reiðhjólunum, hvort sem það er á reiðhjólastígum, göngustígum, gangstéttum eða götum, en mörg slysanna verða vegna falls af hjólunum.
Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms kemur ekki í veg fyrir slysin en dregur úr alvarleika þeirra og minnkar líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar enda eru höfuð þeirra minni og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru.

Ætlað til fræðslu og upplýsingar

Allt efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar.

Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.

Sjúkraþjálfun AFL leggur áherslu á að ef notendur aflid.is eru í vafa um heilsufar sitt, skal leitað til læknis áður en gripið er til nokurrar meðferðar.

Efnið á aflid.is má ekki á nokkurn hátt nota sem grunn að slysa- eða skjúkdómsgreiningu né heldur við val á meðferð, nema í samráði við fagfólk.

Aflid.is ber ekki ábyrgð á neinu tjóni, sem kann að hljótast af notkun eða misnotkun þeirra upplýsinga sem þar er að finna eða tengdum svæðum.