Aflið er að fara af stað með vatnsþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara sem henta vel þeim sem glíma við einkenni frá stoðkerfi eða eftir veikindi og þurfa að koma sér af stað í þjálfun. Hvort sem um er að ræða nýleg eða langvinn vandamál hentar vatnsþjálfun einstaklega vel þar sem líkaminn er léttari í vatni, álagið á liðina minnkar. Vatnsleikfimi er því frábært meðferðarúrræði fyrir þá sem vilja styrkja sig og bæta þol á öruggan og þægilegan máta. Auðvelt að aðlaga æfingar að hverjum og einum.
Tímarnir eru 2x í viku þriðjudaga og föstudaga, 45 mínútur í senn og er vatnsþjálfunin niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands sé tilvísun frá lækni til staðar og fer kostnaður eftir stöðu einstaklings innan heilbrigðiskerfisins.
Sundlaugin er staðstett í Sundlaug Sjálfsbjargar, Hátúni 12.
Tími: Þriðjudaga og föstudaga kl. 13:30, 14:15, 15:00 og 15:45
Staðsetning: Sundlaug Sjálfsbjargar, Hátúni 12
Kennari: Bjarki Ragnarsson, sjúkraþjálfari
Verð: Samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands um hópþjálfun II liggi fyrir beiðni frá lækni*
