Skip to main content

Hann Þorvaldur okkar fékk frábært tækifæri til frekara náms og nú hjá frændum okkar í Noregi. Við munum því ekki njóta starfskrafta hans hér á Afli fyrr en um áramótin 2009/2010.

Hann mun starfa á Hans & Olaf Fysioterapi í miðborg Osló og læra þar Manuel Therapy undir handleiðslu Roar Robinson sem nýtur mikillar virðingar í Noregi og er m.a. sjúkraþjálfari norska knattspyrnulandsliðsins.

Það er ljóst að það verður mikill fengur fyrir okkur á Afli að fá Þorvald aftur til starfa, sprenglærðan eftir námsdvölina í Ástralíu og Noregi 🙂