Skip to main content

Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum, auðug af A- og D- vítamínum og með viðbættu E-vítamíni. Þorskalýsi fæst óbragðbætt, með frískandi sítrónubragði og með ávaxtabragði.

Þorskalýsi styrkir vöxt tanna og beina, hefur góð áhrif á sjónina og byggir upp viðnám gegn ýmsum kvillum. Það er auðugt af ómega-3 fitusýrum og víða um heim er verið að rannsaka ítarlega áhrif þeirra á ýmsa sjúkdóma, svo sem sóríasis, astma, hjarta-, geð- og gigtarsjúkdóma. Niðurstöður rannsóknanna hafa vakið mikla athygli og sýna að fitusýrurnar koma líkamanum til góða á mörgum sviðum. Þær skýra hollustu lýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.

Þorskalýsi er einnig góður D-vítamíngjafi og stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta þorskalýsis til að tryggja nægjanlegt magn þessa mikilvæga vítamíns, ekki síst til að viðhalda beinþéttni.

Innihald
Kaldhreinsað þorskalýsi, E-vítamín.
Innihald og ráðlagður dagskammtur (RDS*)
Börn 1-5 ára1 teskeið (5 ml) á dag            RDS %
   A-vítamín230 µg                                  66 %
   D-vítamín9,2 µg                                   92 %
   E-vítamín4,6 mg                                  92 %
6 ára og eldri1 matskeið (10 ml) á dag       RDS %
   A-vítamín460 µg                                  58 %
   D-vítamín18,4 µg                                 184 %
   E-vítamín9,2 mg                                  92 % 
Næringargildi í 10 ml
Orka340 kJ
Prótín0 g
Kolvetni0 g
Fita9,2 g
Mettuð fita1,6 g
Einómettuð fita4,6 g
Fjölómettuð fita3,0 g
Þar af omega-3 fitusýrur0,8 g
    EPA0,6 g
    DHA0,8 g
A-vítamín460 µg
D-vitamín18,4 µg
E-vítamín 9,2 mg 

tekið af vef www.lysi.is