Skip to main content

1. Vertu viss um að vera í góðri líkamlegri þjálfun áður en þú ferð í skíðaferð.

2. Veldu skíðaútbúnað sem henta þínu líkamsástandi, skíðagetu, kyni og aldri. Mjög mikið úrval er til af skíðavörum og því skal alltaf leita eftir aðstoð sérfræðinga ef þú ert í vafa um hvaða útbúnaður hentar þér.

3. Láttu yfirfara skíðabindingarnar og prófaðu þær sjálf/ur daglega með einföldu prófi. Hvort sem þú átt búnaðinn eða tekur hann á leigu þá skaltu alltaf athuga bindingarnar áður en þú rennir þér af stað. Komdu þér fyrir á skíðunum á jafnsléttu. Ef bindingarnar eru rétt stilltar áttu að geta snúið þig úr þeim hvort sem það er til hliðar eða upp. Ef að þú getur ekki losað þig þá eru bindingarnar og stíft stilltar og þarfnast lagfæringar.
Algengasta orsök hnémeiðsla eru of stífar bindingar. Bindingarnar á að stilla eftir kyni, aldri, þyngd, þjálfunarástandi og skíðareynslu (ekki þykjast vera betri en þú ert) .

4. Varast skal að fá útbúnað lánaðan hjá öðrum sbr. þess sem undan er skrifað.

5. Ef þú ert óvanur þá er mjög skynsamlegt að fara í skíðakennslu áður en lagt er af stað í „stóru“ brekkurnar.

6. Eins og við allar aðrar íþróttir þá er mikilvægt að hita sig upp. Gefðu þér smá tíma til að hita upp og teygja áður en þú rennir þér af stað niður brekkurnar.

7. Vertu í hentugum fatnaði sem hindra ekki hreyfingar.

8. Mælt er með að nota höfuðhjálm og úlnliðshlífar. 

9. Veldu þér brekkur eftir getu – ekki þykjast vera betri en þú ert!

10. Farðu ávallt eftir „umferðareglunum“ á því skíðasvæði sem þú ert.

Sjá nánar um algeng skíðameiðsli