Skip to main content

Hjólað í vinnuna 9-29 maí 2012

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu „Hjólað í vinnuna“. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

Opnun Hjólað í vinnuna fer fram miðvikudaginn 9.maí klukkan 8.30 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal. Þáttakendur sem eiga þess kost er boðið að hjóla við. þiggja ljúffengt bakkesli oghlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp.

Vefsíðan www.hjoladivinnuna.is  gegnir mjög mikilvægu hlutverki þar sem þátttakendur hafa aðgang að ýmsum fróðleik, upplýsingum um sjálfa keppnina, úrslitum og styrktaraðila.

Öryggið í fyrirrúmi 
Hver þátttakandi ber ábyrgð á sínu öryggi. Við hvetjum hjólagarpa og línuskautafólk til að nota hjálma og aðrar varnir og að sjálfsögðu að fara eftir umferðarlögum.

Öflug og kát liðsheild skilar árangri 
Hjólað í vinnuna er gott tækifæri til að auka samheldni og heilbrigði starfsmanna. Hér er að finna frekari hugmyndir og hvatningu til að virkja vinnufélagana með. Til að gera keppnina enn skemmtilegri er tilvalið að skora á aðrar deildir, vinnustaði, samkeppnisaðila, sveitarfélög í heilbrigða samkeppni.

www.hjoladivinnuna