Skip to main content

Siggi Már verður frá vinnu 16.okt – 23.okt vegna golfferðar til Spánar. Siggi er í mjög ströngu æfingaprógrami úti og neyðist hann til að spila a.m.k. 36 holur á dag alla vikuna. Veðrið leikur við hann og er 23°-25°hiti, sól og logn. Við vonumst svo sannarlega að þetta veðurfar henti honum, því ekki gengur honum neitt sérstaklega í íslensku veðráttunni. Það verður forvitnilegt að fylgjast með Sigga úti og ætlumst við til að hann nái að lækka forgjöfina sína (ekki veitir af).