Skip to main content

Þjálfunin er ætluð sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta líkamlegan styrk og auka úthald.
Í upphafi er staða hvers þátttakanda metin og einstaklingsmiðuð markmið sett.

Þjálfunaráætlun er gerð með þau markmið í huga. Kennt er í hóptímum sem byggjast á fjölbreyttum æfingum þar sem unnið er með:
* grunnþol hvers og eins
* styrk
* liðleika
* jafnvægi
* líkamsstöðu og líkamsbeitingu
* spennulosun


Tímasetning: 22. maí – 29. júní , þriðjudagar og föstudagar kl. 8:15 – 9:15, samtals 12 tímar


Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir
Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin)


Hámarksfjöldi þátttakenda er 5. Lágmarksaldur: 18 ára. Hægt er að bæta við fleiri námskeiðum ef eftirspurn verður mikil kl. 9:15 – 10:15 sömu vikudaga


Námskeiðsgjald: Námskeiðið er kostað með greiðsluþátttöku frá Sjúkratryggingum Íslands og af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.


Umsóknarfrestur er til 9. maí
Skráning fer fram hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð í síma 545 5800

sjá nánar http://midstod.is/