Skip to main content

Mjaðmagrindina má kalla miðju mannslíkamans. Alltaf hvílir einhver þungi á mjaðmagrindinni hvort sem við sitjum, stöndum eða liggjum. Þess vegna er hún alltaf undir álagi og því mikið í húfi að hafa hana í lagi.
Innan mjaðmagrindarinnar eru mörg innri líffæri og vöðvar sem með flóknu samspili vinna saman að því að allt hreyfist og virki eins og það á að gera.

Það er staðreynd að vandamál tengd mjaðmagrindinni sem leita inn á borð sjúkraþjálfara og lækna eru mun algengari hjá konum en körlum. Það er vegna þess að líkami kvenna er flóknari að þessu leyti en líkami karla og er til að konur geti gengið með börn. Því má þó ekki gleyma að þegar kemur að almennum hreyfingum og vöðvavinnu á þessu svæði þá eru kynin ekki svo ólík.

Á meðgöngu reynir mikið á mjaðmagrindina hjá konum. Áhrif hormónsins relaxin sem, eins og nafn þess gefur til kynna, slakar á liðböndum mjaðmagrindarinnar til að hún geti gefið eftir og stækkað eftir því sem barnið vex, valda því stundum að konur fá verki í mjaðmagrindina á meðgöngu.
Nokkuð algengt er að konur finni fyrir einhverjum einkennum í mjaðmagrind á meðgöngu en það er þó ekki algilt. Það sem skiptir mestu máli er góð líkamsstaða, rétt líkamsbeiting og hófleg þjálfun líkamans eftir ástandi hverrar konu fyrir sig. Aðrir þættir skipta þó einnig miklu máli eins og til dæmis hvernig vinnu viðkomandi vinnur, það er að segja er mikið um líkamlegt eða einhæft álag í vinnu svo sem kyrrseta og fleira.

Til þess að bregðast rétt við er nauðsynlegt að fá rétta fræðslu og leiðbeiningar hjá sjúkraþjálfara sem þekkir til. Stundum vill svo verða að konur fá grindarlos eða jafnvel grindargliðnun en þá er mun meiri óstöðugleiki í einhverjum af þremur aðalliðamótum mjaðmargrindarinnar (spjaldliðunum tveimur eða lífbeini) og jafnvel í öllum þremur.
Þegar það verður þarf konan að fara sér mun hægar og vera undir eftirliti eða í meðferð hjá sjúkraþjálfara á meðgöngunni.

Hér er sá listi ekki tæmdur um sértækari vandamál sem konur geta upplifað í mjaðmagrindinni á meðgöngu.Sú umræða hefur oft komið upp síðustu ár hvers vegna verkir í mjaðmagrind og vandamál tengd meðgöngu virðast mun algengari í dag en þau voru hjá kynslóðunum á undan. Ýmsar kenningar eru á lofti en þó er ekkert sannað í þeim málum.

Undirrituð hefur haft mikinn áhuga á því síðustu árin að skoða hvort við getum komið í veg fyrir eða minnkað þau vandamál sem margar konur fást við eftir meðgöngu og fram eftir aldri. Þessi vandamál eru meðal annars sig á grindaholslíffærum (aðallega þvagblöðru og legi) og aðrir kvillar því tengdir.
Ýmislegt hefur breyst og batnað í fræðslu og upplýsingaflæði til kvenna á meðgöngu og  eftir hana og því er það áhugavert að skoða hvort vinna megi á móti þessum vandamálum með fræðslu, skoðun og greiningu sjúkraþjálfara sem sérhæfir sig á þessu sviði í samvinnu við lækni. Ef gripið er nógu snemma inn í þá má minnka eða lækna hvimleið vandamál og jafnvel koma í veg fyrir aðgerðir.

Það getur haft mikil áhrif á lífsgæði að vera með verki og því ætti enginn að spara sér það að fá faglegt mat og greiningu á sínum vandamálum.

Höfundur Sólrún Sverrisdóttir sjúkraþjálfari í Gáska
tekið úr Fréttatímanum 6.1.2012