Skip to main content

Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) boðar til málþings laugardaginn 1. nóvember
í Hátúni 10, 9. hæð (vesturturni).

Ungt fólk með fötlun er sérstaklega hvatt til að mæta.

Málþingið er frítt og öllum opið en mikilvægt að skrá þátttöku (sjá neðst í skjali). Boðið verður upp á pizzu í hádeginu.


Umfjöllun málþingsins eru hugrenningar fólks með fötlun til barneigna og fjölskyldumyndunar.

Dagskrá:

10:00-10:10  Setning.Halldór Sævar Guðbergsson,formaður ÖBÍ, setur málþingið

10:10-10:40  ?Hver fjölskylda skiptir máli, foreldrar með fötlun.?

                     Eva Þórdís Ebenezersdóttir segir frá ráðstefnu sem hún sótti til London í sumar.

10:40-11:10  Þjónusta mæðraverndar og fæðingardeildar við verðandi foreldra með fötlun á Íslandi.

                     Guðrún G. Eggertsdóttir, ljósmóðir fæðingardeild LSH

                     Jóna D. Kristinsdóttir, ljósmóðir mæðravernd

11:10-11:40  Góður stuðningur gerir gæfumuninn.

                     Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor í fötlunarfræði.

11:40-12:00  Fyrirspurnir úr sal.

12:00-13:00  Matarhlé.

13:00-14:30  Reynsla og væntingar fólks með fötlun af foreldrahlutverkinu.

                     Edda Bergmann

                     Bergvin Oddsson

                     María Hreiðarsdóttir

                     Steinunn Þóra Árnadóttir

14:30-15:00     Kaffi.

15:00-16:00     Pallborðsumræður.

                        Er stuðningur við væntanlega foreldra með fötlun nægur hér á landi?

                        Hanna Björg Sigurjónsdóttir

                        Steinunn Þóra Árnadóttir

                        Eva Þórdís Ebenezersdóttir

Mikilvægt er að fólk skrái sig svo hægt sé að áætla magn veitinga.

Vinsamlega takið fram við skráningu ef þörf er á táknmálstúlki.

Skráning er á skrifstofu ÖBÍ í síma 530 6700 og á netfangið thorny@obi.is til og með 30. október.