Skip to main content

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð blindra, sjónskertra og daufblindra býður upp á hópþjálfun í líkamsþjálfun í samstarfi við Sjúkraþjálfunina Afl.

Þjálfunin er ætluð sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta líkamlegan styrk og auka úthald.

Í upphafi er staða hvers þátttakanda metin og einstaklingsmiðuð markmið sett. Þjálfunaráætlun er gerð með þau markmið í huga. Kennt er í hóptímum þar sem tímarnir byggjast á fjölbreyttum æfingum þar sem unnið er með:

* Grunnþol hvers og eins
* Styrk
* Liðleika
* Jafnvægi
* Líkamsstöðu og líkamsbeitingu
* Spennulosun

Tímasetning:

Fyrra námskeið: 4.febrúar – 20. mars, mánudagar og miðvikudagar kl. 11:15-12:15
Seinna námskeið: 5.febrúar – 22 mars, þriðjudagar og föstudagar kl. 8:15-9:15
Samtals 14 tímar


Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir

Staðsetning:
Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin)
Hámarksfjöldi þátttakenda er 5.
Lágmarksaldur: 18 ára
Námskeiðsgjald: 3.000 kr.
Skráningarfrestur er til 28. janúar
Skráning fer fram hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð í síma 545 5800