Skip to main content

Í tilefni af 25 ára afmæli ADHD samtakanna efna þau til ráðstefnu þar sem farið er yfir birtingarmyndir ADHD á mismunandi æviskeiðum og þær áskoranir sem þeim fylgja.

Ráðstefnan er ætluð foreldrum barna með ADHD, fullorðnum með ADHD, fagfólki í skóla-, félags- og heilbrigðisþjónustu og öðru áhugafólki um ADHD. Fjölmargir innlendir og erlendir fyrirlesarar munu þar greina frá því nýjasta og helsta sem vitað er um ADHD og þróun röskunarinnar.

Ráðstefnan verður haldin á Grand hótel Reykjavík dagana 25. og 26. október 2013.

Skráðu þig núna á heimasíðu ADHD samtakana www.adhd.is

Nánari dagskrá er hægt að nálgast hér