Skip to main content

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa.
Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna hér. 

Lífshlaupið stendur fyrir:
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri, tvær vikur eða frá 5-18 febrúarframhaldsskólakeppni, fyrir 16 ára og eldrivinnustaðakeppni, þrjár vikur í febrúar eða frá 5-25 febrúareinstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt áriðSkrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Nánari upplýsingar um grunnskóla-, framhaldsskóla-, vinnustaða- og einstaklingskeppnina er að finna hér í valstikunni vinstra megin.
Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.
Þín heilsa – Þín skemmtun
Nánari upplýsingar má finna á http://www.lifshlaupid.is/