Skip to main content

Allir ættu að hreyfa sig daglega, óháð aldri, kyni, holdafari, andlegri eða líkamlegri getu. Út frá sjónarhorni lýðheilsu æskilegast að stunda hreyfingu sem heilsurækt en ekki eingöngu sem líkamsrækt.

Með þessu er átt við að hreyfingin sjálf og þær aðstæður sem hún er stunduð við hafi ekki aðeins jákvæð áhrif á líkamlega getu og líðan heldur stuðli hún einnig að andlegri og félagslegri vellíðan.

Mikilvægast er takmarka þann tíma sem varið er í kyrrsetu og velja sem fjölbreyttasta hreyfingu í samræmi við getu og áhuga hvers og eins.

Raunhæf markmiðasetning, hæfilegur stígandi í álagi og góð líkamsbeiting eru dæmi um atriði sem einkenna hreyfingu sem heilsurækt. Óraunhæfar væntingar, of mikið álag og röng líkamsbeiting stuðla hins vegar að meiðslum og vanlíðan.

sjá nánar á www.hreyfitorg.is