Skip to main content

Daði Reynir Kristleifsson sjúkraþjálfari á AFLi er nú meðlimur í fjarþjálfunarteymi www.hafit.is

Háfit er fagleg fjarþjálfun sem er hönnuð með þarfir stúdenta nútímans í huga. Æfingaráætlanir gera ráð fyrir því að æfingar taki á bilinu 20-40 min.
Mataráætlanir gera ráð fyrir ódýrum mat sem er einfalt að útbúa. Því gætu einkunnarorð Háfit verið fljótlegt, ódýrt og áhrifaríkt fyrir önnum kafið fólk.

Háfit leggur mikið upp úr því að öll leiðsögn sé fagleg, vönduð og árangursrík. Allt starfsfólk Háfit er með menntun og útskrifað frá Háskóla Íslands.
Innan vébanda Háfit eru íþróttafræðingur, næringarfræðingur og sjúkraþjálfari. Starfsfólkið er framúrskarandi á sínu sviði og öll eru þau útskrifuð með fyrstu einkunn.


Davíð Ingi Magnússon, meistaranemi í lögfræði, tók ákvörðun á
vormánuðum um að taka sjálfan sig í gegn. Hann fór í Háskólaræktina og
byrjaði að hlaupa. Eins og margir kannast við koma hugmyndir gjarnan fljúgandi þegar lögð er rækt við líkamann.
Davíð lét því ekki þar við sitja heldur ákvað að freista þess að koma öllum háskólanemum í form. Nú hefur hann
stofnað, ásamt fríðu föruneyti, fjar þjálfun Háskólafitness, eða Háfit.
Hann kynnti hugmyndina fyrir stjórn Háskóla Íslands, sem leist vel á, og ákveðið var að hefja samstarf.
Davíð segir hugmyndina ekki síst lúta að því að virkja þekkinguna sem verður til í háskólanum. „Innan veggja skólans má finna vel menntaða næringar fræðinga, sjúkraþjálfara, lækna og íþrótta fræðinga.“


Davíð setti þá saman teymi af úrvalsfólki. „Ég vildi fá fólk sem er framúrskarandi á sínu sviði. Ragna Baldvinsdóttir er semídúx úr íþróttafræði, Daði Reynir Kristleifsson sjúkraþjálfari er Evrópumeistari í krossfitt og Elísabet Margeirsdóttir næringarfræðingur hefur hlaupið sjö maraþon, eitt 100 km hlaup og er hvergi nærri hætt,“ segir hann og brosir.

Eftir að stjórn skólans samþykkti samstarf tók Davíð að hanna og forrita vefsíðu, ásamt Rakel Tómasdóttur hönnuði. Á vefsíðunni geta áskrifendur meðal annars nálgast myndbönd af öllum æfingunum, sem og útskýringar á textaformi. „Sjúkraþjálfarinn okkar, Daði Reynir, útskýrir æfingarnar gaumgæfilega, enda er mikilvægt að fólk geri æfinguna rétt frá upphafi.“
Ragna íþróttafræðingur útbýr allar æfingaáætlanir og Elísabet næringarfræðingur reiknar út orku- og næringar-þörf hvers og eins út frá markmiðum og æfingaplani.


Skráning er hafin, en þeir sem skrá sig mæta í mælingu í september og í kjölfarið er líkamsræktaráætlun útbúin, út frá markmiðum hvers og eins.


„Háskólaræktin er ódýrasta líkamsrækt á Íslandi,“ segir Davíð. „Okkar starfsemi verður í takt við það. Við bjóðum upp á þjónustu á verði sem
stúdentar ráða við.“
Hægt er að skrá sig og nálgast allar nánari upplýsingar á vefsíðu Háfit, www.hafit.is.

birtist í Fréttablaðinu 27.8.2013 www.visir.is