Sports Hernia (Gilmore´s Groin)

Forsíða » Fræðsla » Íþróttameiðsli » Kviður » Sports Hernia (Gilmore´s Groin)

Orsakir

Hér er ekki um „beint“ kviðslit að ræða þar sem hvorki er hægt að greina það fyrir eða í aðgerð. Hér er um að ræða skemmdir í vöðvum og sinum sem umlykja Inguinal göngin. Inguinal göngin eru svæði milli kviðveggsins og innra læris. Þar sem Inguinal göngin fara í gegnum kviðvegginn myndast veikur staður í honum. Í þessum göngum liggur m.a. sáðrásin hjá karlmönnum og liðbönd fyrir legið hjá konum.

Einkenni

Verkir í nára við íþróttaiðkun án þess að þar sé nein bólga sjáanleg og ekki finnst nein önnur skýring á náraverkjunum. Íþróttamaðurinn á oft erfitt með að staðsetja verkinn nákvæmlega.
Algengt er að viðkomandi hafi verki við að hósta og hnerra og þegar hann framkvæmir kviðæfingar.
Eftir æfingar og keppni er íþróttamaðurinn stífur og aumur í nárasvæðinu. Daginn eftir keppni á hann t.d.í erfiðleikum með að fara fram úr rúminu og eins inn og út úr bílnum. Athafnir sem auka þrýstingi í kviðarholinu eins og að hnerra, hósta og rembast valda sársauka. Mjög erfitt er að greina kviðslit og það er ekki óalgengt að það taki margar vikur eða jafnvel mánuði að fá rétta greiningu.
Þegar kviðslitið er á byrjunarstigi getur viðkomandi haldið áfram að æfa og keppa en einkennin versna yfirleitt smá saman og þvinga viðkomandi til að hætta að æfa.

Skoðun

Algengar rannsóknir s.s. röntgen,ómskoðun,segulómun o.f.l. gagnast oft lítt við greiningu á Sports Herniu.
Sérfræðilæknar geta þreifað á Inguinal göngunum, en þau eru víðari og aumari þeim megin sem verkirnir eru og einnig styðjast þeir við meiðslasögu viðkomandi. Um 40% þeirra sem þjást af Gilmore´s groin eru einnig með vandamál í náravöðvunum, sem stundum þarfnast aðgerðar.

Meðferð

Gera styrktar- og stabiliserandi æfingar fyrir kviðvöðva og bakvöðva . Með því verður viðkomandi betur undirbúinn að takast á við það álag sem verður á neðri kviðvöðva og mjaðmarvöðva við æfingar og keppni. Í flestum tilfellum duga þessar æfingar íþróttamanninum aðeins tímabundið og hann endar því með að fara í aðgerð.
Þegar kviðslitið er á byrjunarstigi getur viðkomandi haldið áfram að æfa og keppa en einkennin versna yfirleitt smásaman og þvinga viðkomandi til að hætta að æfa.
Áður en viðkomandi ákveður að fara í aðgerð vegna kviðslits, ætti hann að hafa reynt alla þá möguleika sem eru í boði þ.e. hvíld, styrktaræfingar og stabiliserandi æfingar fyrir þá vöðva sem eru aumir.
Þegar rétt greining er komin og viðkomandi ákveður að fara í aðgerð vegna Sports Herniu má reikna með 4 vikum í endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara áður en hann getur hafið æfingar og keppni aftur.

 

Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.