Skip to main content

Bandarískir læknar telja það kraftaverk að 20 mánaða gamalt barn skyldi sleppa óskaddað eftir að það datt á lyklakippu með þeim afleiðingum að bíllykill stakkst inn í höfuðkúpu þess meðfram öðru auganu og gekk inn í heilann.
Þetta gerðist í Kentucky-ríki og var flogið með barnið á næsta sjúkrahús með þyrlu. Læknar voru nær vissir um að barnið væri dauðvona en þegar lykillinn hafði verið fjarlægður kom í ljós að barnið hafði ekki hlotið heilaskaða og það sem merkilegra þótti, augað hafði einnig sloppið algjörlega.

tekið af vef www.visir.is