Skip to main content

Í tilefni af eineltisdeginum 8. nóvember  vill Vinnueftirlitið  og Sjúkraþjálfun AFL vekja athygli  á þýðingu þess að eiga

JÁKVÆÐ SAMSKIPTI 🙂

Á góðum vinnustað er lögð áhersla á góð samskipti.  Þar ríkir umburðarlyndi og virðing borin fyrir mismunandi lífsskoðunum og ólíkum uppruna.  Það er verkefni allra á vinnustað að skapa góðan starfsanda- öllum til góðs. Góður stjórnandi er góð fyrirmynd.

Á meðfylgjandi vefslóð Vinnueftirlitsins er veggspjaldið 10 ráð til að vinna gegn einelti á vinnustað; http://www.vinnueftirlit.is/vinnueftirlit/upload/files/fraedsluefni/einelti/einelti_veggspjald_2011.pdf.

Prentið út og hengið upp!