Skip to main content

Fimmtudaginn 10. október kl. 17:00, á Alþjóðlegum sjónverndardegi, verður fræðslufundur þar sem kynnt verður ný tilraunameðferð við RP, sem fyrirhugað er að setja i gang hér á landi. Við það tilefni mun Blindrafélagið færa augndeild LSH að gjöf tæki til þessarar meðferðar. Fundurinnverður í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17.

Annar fimmtudagur í október ár hvert er alþjóðlegur sjónverndardagur. Um nokkurra ára skeið hafa Blindrafélagið og Lions hreyfingin á Íslandi staðið sameiginlega að fræðslufundi á þessum degi tengdum málefni dagsins.

Í ár mun verða kynning á nýrri tilraunameðferð við RP (Retinitis Pigmentosa) (Opnast í nýjum vafraglugga)  sem sett hefur verið upp í nokkrum borgum í Evrópu og er í undirbúningi að verði einnig boðin á Íslandi. RP er ólæknandi hrörnunarsjúkdómur í sjónhimnu og algegnast orsök sjónskerðingar og blindu hjá ungu fólki. Á Íslandi er um 100 einstaklingar með RP.

Helgi Hjörvar er nú þegar þátttakandi í tilraunmeðferð í Þýskalandi og hefur Þór Eysteinsson prófessor í lífeðlisfræði aðstoðað hann. Stuðningur til sjálfstæðis, styrktarsjóður Blindravinafélagsins og Blindrafélagsins hefur styrkt Helga til þátttöku í meðferðinni.

Til að hægt verði að bjóða þessa tilraunmeðerð hér á landi  hefur Blindrafélagið ákveðið að gefa augndeild Landsspítal Háskólasjúkrahúss tæki til þessara meðferðar og verður tækið formlega afhent á fundinum.

Meðferðin felur í sér rafertingu í gegnum á hornhimnuna. Tilgangurinn er að erta ljósnæmar frumur í sjónhimnunni í þeirri vona að þær vakni úr dvala. Standa vornir til þess að þannig megi draga úr eða jafnvel stöðva hrörnunarferli þessara ljósnæmu fruma, sem er það sem að gerist í RP. 

Helgi og Þór munu kynna þessa tilraunameðferð á fræðslufundi sem verður haldinn fimmtudaginn 10 október kl 17:00 í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17.

RP
RP eða Retinitis Pigmentosa er flokkur arfgengra hrörnunarsjúkdóma í sjónhimnu sem oftast lýsir sér fyrst í náttblindu og síðar ört minnkandi sjónsviði. Á íslandi er talið að um 100 einstaklingar séu alvarlega sjónskertir eða alveg blindir af völdum RP.  Þrátt fyrir miklar rannsóknir á undanförnum árum hafa engar meðferðir ennþá komið fram sem beita má gegna þessum sjúkdómum. RP augnsjúkdómar eru algengasta orsök alvarlegrar sjónskerðingar og blindu hjá ungu fólki utan þróunarlandanna.

Hér má nálgast (Opnast í nýjum vafraglugga) fræðslubækling

tekið af vef Blindrafélagsins www.blind.is