Skip to main content

Rúnar er búinn að æfa eins og skepna sl. mánuði fyrir þetta hlaup. Mikil spenna er í loftinu og ætlumst við til að hann bæti sinn besta tíma umtalsvert. Það verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála hjá honum, en fréttamaður Aflsins mun fylgjast með hlaupinu í gegnu gervihnött og láta vita jafnóðum.
Sjúkraþjálfun AFL óskar honum góðs gengis n.k. sunnudag.

Þess má geta í lokin fyrir þá sem ætla að fylgjast með þessu í sjónvarpinu, þá mun Rúnar hlaupa í sínum margrómuðu appelsínugulu sokkabuxum og verður því auðþekkjanlegur.