Hálshnykkur
Orsakir
Hálshnykkur verður þegar höfuðið kastast fram, aftur eða til hliðar með tilheyrandi álagi á hálshrygginn. Hálshnykkur getur orðið með ýmsum hætti s.s. við fall eða íþróttaiðkun en oft verður hann við bílslys, sérstaklega aftaná keyrslu. Við aftaná keyrslu er algengt að svo kallaður „whiplash“ hnykkur eigi sér stað, en við höggið kastast höfuðið fyrst aftur (hyperextension) og svo fram (hyperflexion) á töluverðum hraða.
Hálshnykkir eru mis alvarlegir og ræður höggþungi og hraði m.a. þar um. Í sumum tilfellum upplifir fólk tímabundin minniháttar óþægindi sem lagast af sjálfu sér. Í öðrum tilfellum kann hnykkurinn að hafa valdið áverka á bein, vöðva, diska, liðbönd eða sinar með tilheyrandi verkjum og óþægindum. Alltaf skal hafa í huga að fólk getur hlotið heilahristing eða aðra höfuðáverka við hálshnykk og því er mikilvægt að leita strax á slysamóttöku og fá álit læknis. Verkir get komið fram strax við áverka eða eftir einhverja klukkutíma/daga/vikur. Ef afleyðingar hálshnykks hverfa ekki fljótlega er fólki ráðlagt að leita aftur til læknis eða hitta sjúkraþjálfara.