Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum, auðug af A- og D- vítamínum og með viðbættu E-vítamíni. Þorskalýsi fæst óbragðbætt, með frískandi sítrónubragði og með ávaxtabragði.
Þorskalýsi styrkir vöxt tanna og beina, hefur góð áhrif á sjónina og byggir upp viðnám gegn ýmsum kvillum. Það er auðugt af ómega-3 fitusýrum og víða um heim er verið að rannsaka ítarlega áhrif þeirra á ýmsa sjúkdóma, svo sem sóríasis, astma, hjarta-, geð- og gigtarsjúkdóma. Niðurstöður rannsóknanna hafa vakið mikla athygli og sýna að fitusýrurnar koma líkamanum til góða á mörgum sviðum. Þær skýra hollustu lýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.
Þorskalýsi er einnig góður D-vítamíngjafi og stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta þorskalýsis til að tryggja nægjanlegt magn þessa mikilvæga vítamíns, ekki síst til að viðhalda beinþéttni.
| Innihald | |
| Kaldhreinsað þorskalýsi, E-vítamín. | |
| Innihald og ráðlagður dagskammtur (RDS*) | |
| Börn 1-5 ára | 1 teskeið (5 ml) á dag RDS % |
| A-vítamín | 230 µg 66 % |
| D-vítamín | 9,2 µg 92 % |
| E-vítamín | 4,6 mg 92 % |
| 6 ára og eldri | 1 matskeið (10 ml) á dag RDS % |
| A-vítamín | 460 µg 58 % |
| D-vítamín | 18,4 µg 184 % |
| E-vítamín | 9,2 mg 92 % |
| Næringargildi í 10 ml | |
| Orka | 340 kJ |
| Prótín | 0 g |
| Kolvetni | 0 g |
| Fita | 9,2 g |
| Mettuð fita | 1,6 g |
| Einómettuð fita | 4,6 g |
| Fjölómettuð fita | 3,0 g |
| Þar af omega-3 fitusýrur | 0,8 g |
| EPA | 0,6 g |
| DHA | 0,8 g |
| A-vítamín | 460 µg |
| D-vitamín | 18,4 µg |
| E-vítamín | 9,2 mg |
tekið af vef www.lysi.is
