Skip to main content

Orsakir

Við síendurtekið, mikið og/eða rangt álag, geta myndast litlar rifur í vöðvafestunni sem geta valdið bólgu
(sjá mynd). Ef bólga myndast í vö

Utanverð liðbandameiðsli í ökkla
(Ruptura Traumatica Ligamenti Lateralis Pedis)

Orsakir

Ökklameiðsli eru ein algengustu íþróttameiðslin nú til dags. Oftast verða liðbandameiðslin utanvert á ökklanum vegna beinabyggingar ökklans. Meiðslin verða þegar ökklaliðurinn snýst inná við t.d. þegar knattspyrnumaður stekkur upp í skallabolta og lendir síðan með fullum þunga utanvert á fætinum og misstígur sig. Algengast er að anterior talofibular liðbandið verði fyrir áverka við utanvert ökklameiðsli (sjá mynd).
Liðbanda áverkum er hægt að skipta í 3 flokka eftir alvarleika meiðslanna:

1°  Oftast talað um tognun, þar sem aðeins nokkrir þræðir í liðbandi verða fyrir skemmdum.
2°  Hér er liðbandið að hluta til slitið og mun fleiri þræðir í liðbandinu hafa orðið fyrir skemmdum.
3°  Hér er liðbandið alveg slitið.

Einkenni

Verkir utanvert á ökklanum undir kúlunni (malleolus lateralis). Bólga vegna blæðingar og verkir þegar stigið er í fótinn. Einkenni verða oft meiri eftir því sem meiðslin eru alvarlegri.

Bráðameðferð:

Mikilvægt er að þekkja rétt viðbrögð við íþróttameiðslum – RICE meðferðin. Meðferðina á að byrja sem allra fyrst eftir meiðsli. Ef RICE meðferðinni er beitt rétt frá byrjun, þá minnkar bæði blæðingin og bólgan, örvefsmyndun verður minni og það minnkar líkurnar á langvarandi óþægindum. Einnig styttir það endurhæfingartímann og viðkomandi nær fyrr bata.

Skoðun

Hafðu samband við sjúkraþjálfara eða lækni til að fá rétta greiningu og meðferð við ökklatognunum. 
Við 1° tognun er ekki mikil bólga og engin óþægindi að stíga í fótinn, það er því ekki nauðsynlegt að leita sér sérfræðiaðstoðar. Bólgan segir þó ekki alltaf til um alvarleika meiðslanna.
Ef um mikla bólgu og/eða verki er að ræða er nauðsynlegt að leita til sjúkraþjálfara eða læknis til frekari skoðunar. Sé einhver grunur er um beinbrot skal tekin röntgenmynd af fætinum.

Meðferð

Eftir bráðameðferðina (48 tíma) getur endurhæfing hafist.  Hafðu samband við sjúkraþjálfara eða lækni sem metur alvarleika meiðslanna. Eftir skoðun er sett upp endurhæfingaprógram, í samvinnu við hinn slasaða, svo viðkomandi geti sem fyrst náð sér af meiðslum sínum.
Við minni tognanir (1°og 2°), ef rétt hefur verið staðið að málum frá byrjun, ætti íþróttaiðkandinn að geta hafið æfingar aftur eftir 8-10 daga. Þá er nauðsynlegt að hafa ökklastuðning (td teip, ökklaspelkur). 
Mikilvægt er að halda áfram endurhæfingunni fyrir þrátt fyrir að íþróttaiðkandinn sé farinn að æfa og finnist hann vera alheill af meiðslum sínum. Það tekur liðbönd 6 mánuði að ná fullum styrk aftur og því mikilvægt að halda áfram með æfingaprógrammið þann tíma. Æfingar á ökklabretti eru mikilvægar bæði í endurhæfingunni og eins sem fyrirbyggjandi aðgerð. Æfingar á ökklabretti ættu að vera fastur liður í æfingaprógrammi hjá þeim sem hafa orðið fyrir liðbandameiðslum í ökkla.


Ef rétt er staðið að bráðameðferð og endurhæfingu hjá sjúkraþjálfara er mjög sjaldgæft að ökklin nái sér ekki og verði til langframa óstöðugur. Ef ökkli er mjög óstöðugur eftir að endurhæfing hefur verið fullreynd, þá er hægt að strekkja liðböndin með skurðaðgerð.

Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.

ðvafestingu þá er það merki þess álagið sé of mikið á vöðvafestuna og ef ekki er dregið úr álaginu þá er hætta á “króniskum” bólgum sem erfitt er að meðhöndla.
Íþróttamönnum sem stunda „spaðasport“ mikið án þess að hafa tileinkað sér rétta sveiflu, rétt grip eða réttan útbúnað er hætt við að fá tennisolnboga, en tennisolnbogi getur líka komið til af annarskonar álagi.

Einkenni

Eymsli og verkir á utanverðum olnboga (þar sem beinið stendur út) sem versna ef viðkomandi spennir vöðvana (beygja úlnlið) í framhandlegg sem festast á epicondyl lateralis. Verkir aukast einnig við þreifingu og þegar teygt er á sömu vöðvum.

Bráðameðferð:

Mikilvægt er að þekkja rétt viðbrögð við íþróttameiðslum – RICE meðferðin.

Skoðun

Venjulega nægir almenn skoðun hjá lækni eða sjúkraþjálfara til að staðfesta greininguna, en ef um einhvern vafa er að ræða þá er ráðlegt að senda viðkomandi í ómskoðun sem getur staðfest bólgubreytingar í vöðvafestingunni. Langvarandi bólgur í sininni geta valdið skaða á beinhimnunni sem og kölkun í mjúkvefjunum í kring (svipað hælspora) sem er oft mjög erfitt að meðhöndla. Því er mikilvægt að leita til læknis eða sjúkraþjálfara ef einkennin hverfa ekki þegar dregið hefur verið úr álagi.

Meðferð

Fyrst þarf viðkomandi að láta skoða tæknina (sveifluna) sína með þjálfaranum sínum. Í öðru lagi þarf að ganga úr skugga um að spaðar, kylfur og grip henti viðkomandi iðkanda. Þessi atriði verða að vera í lagi til að endurhæfingin skili árangri og til að koma í veg fyrir endurtekin meiðsli.
Meðferðin saman stendur síðan af hvíld eða þá að dregið er úr álagi, vöðvateygjum ásamt styrktarþjálfun fyrir framhandleggsvöðva. 
Mörgum finnst gott að nota teip eða sérstaka spelku sem er sett rétt fyrir neðan olnboga. Með þessu er komið í veg fyrir að vöðvarnir geti framkallað fullan kraft og þannig minnkar tog á vöðvafestur og verkurinn minnkar.
Ef þetta dugar ekki til er hægt að taka bólgueyðandi töflur eða fá bólgueyðandi sprautu í samvinnu við lækni. 
Ef ekkert af því sem hér hefur verið nefnt virðist virka þá er neyðarúrræði að fara í skurðaðgerð. Útkoma skurðaðgerða er ekki 100% og ætti því ekki að huga að því nema að allt annað sé full reynt.

Hér er myndband með hugmyndum af æfingum sem gott er að gera þegar menn glíma við tennisolnboga ; 
http://www.youtube.com/user/PositiveMotionChiro#p/u/1/uJ70ATzEZ00

Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.