Rifbeinsbrot
Orsakir
Brjóstkassinn er samansettur úr 12 pörum af rifbeinum sem festast við brjósthrygginn að aftan og bringubeinið að framan. Brjóstkassinn hefur meðal annars það hlutverk að vernda hjartað, lungun, lifrina og miltað. Á rifbeinin festast vöðvar sem taka meðal annars þátt í öndun.
Rifbeinin er viðkvæm því þau liggja grunnt undir húðinni og hafa litla vörn yfir sér ólíkt flestum öðrum beinum. Rifbeinsbrot verður yfirleitt þegar viðkomandi fær högg á rifbeinin t.d. ef þú dettur eða við mikið álag á rifbeinin eins við íþróttaiðkun.
Einkenni
Verkir við djúpa öndun
Verkir við beinan og óbeinan þrýsting á rifbeinin
Bráðameðferð
Bráðameðferð við rifbeinsbroti er aðallega verkjastillandi töflur.
Skoðun
Skoðun fer venjulega fram hjá lækni eða sjúkraþjálfara. Hægt er að meta hvort um brot sé að ræða út frá einkennum og með því að þreifa rifbeinin. Hægt er að staðfesta hvort um rifbeinsbrot sé að ræða með ómskoðun. Erfitt er að greina rifbeinsbrot með röntgen mynd.
Meðferð
Ekki hætta að hreyfa þig en hlustaðu á verkinn. Forðast skal mikla áreynslu og íþróttir þar sem geta orðið árekstrar.
Það er vont að hósta og draga djúpt andann. Hægt er að nota púða til þess að halda við á meðan maður hóstar.
Endurhæfing
Hafa ber í huga
Ef þú færð skyndilega andnauð, þá getur verið að brotni endi rifbeinsins hafi rekist í lungun. Ef þetta gerist skal leita beint á bráðamóttöku.
Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.