Iljarfellsbólga

(Plantar fasciitis)

Forsíða » Fræðsla » Íþróttameiðsli » Fætur » Iljarfellsbólga (Plantar fasciitis)

Orsakir

Plantar fascian er breið sin í ilinni sem nær frá hælbeini og fram í tær og er hlutverk hennar að styðja við iljarbogann.  Þræðir úr hásin og plantar fasciu tengjast saman á hælbeini og geta einkenni í annari sininni orsakað einkenni í hinni.

Iljarfellsbólga er bólga í plantar fasciunni sem kemur vegna ofálags. Þar sem plantar fascian er í raun framlenging af hásininni þá eru oft sömu álagsþættir sem valda bólgu í þessum sinum.

Einkenni

Verkir við hlaup og hopp og þegar þrýst er á plantar fasciu festuna undir hælbeininu.Yfirleitt er bólgan alveg við hælbeinið að innanverðu og getur verkur leitt fram ilina. Þetta er mjög algeng ástæða hælverks og verkja í il hjá hlaupurum. Verkurinn eykst við átök og er líka oft til staðar á morgnana þegar fyrstu skref dagsins eru tekin.

Bráðameðferð

Mikilvægt er að þekkja rétt viðbrögð við íþróttameiðslum – RICE meðferðin.

Skoðun

Við væg einkenni á byrjunarstigi, sem koma smámsaman og ekki versna skyndilega, er ekki nauðsynlegt að leita læknis. Í tilfellum þar sem einstaklingurinn finnur smell eða skyndilegan sársauka í plantar fasciunni skal leita strax til læknis til að útiloka slit í sininni (í hluta hennar) eða beinbrot.
Í öllum tilfellum, þar sem ekki er jafn framgangur í endurhæfingunni, ætti viðkomandi að fara í ómskoðun. Í ómskoðun er hægt að meta hversu alvarleg og hvers eðlis meiðslin eru: bólga í sininni (tendinitis), örvefsmyndun í sininni (tendinosis), kölkun í sininni, bólga í sinaslíðrinu sem umlykur hásinina (peritendinitis), slímsekkjarbólga (bursitis), sem og rifur og slit að hluta til í sininni.

Meðferð

Meðferð á plantar fasciitis felst aðallega í því að draga úr álagi á sinina (hlaup og hopp). Það er ekki þörf á að hætta þjálfun, heldur ætti að breyta henni og er jafnan óhætt að gera allt sem ekki veldur verkjum í sininni. Það er hægt að viðhalda úthaldi og styrk t.d. með sundi og hjólreiðum.
Ef viðkomandi leitar sér fljótt hjálpar hjá sjúkraþjálfara getur hann náð sér á nokkrum vikum. Hafi verkurinn hefur verið til staðar í marga mánuði og ef ómskoðun leiðir í ljós þykknun og breytingar í sininni, getur endurhæfingin tekið nokkra mánuði. Þar sem plantar fascian er framlenging af hásininni, þá er endurhæfingin á margan hátt svipuð og við hásinabólgu.
Þegar verkir og bólga eru horfin þarf að teygja plantar fasciuna með því að toga tær í átt að sköflungi. Ef um stífa liði í fæti eða ökkla er að ræða þarf að liðlosa þá.
Mikilvægt er að skóbúnaður sé í lagi (t.d. góðir hlaupaskór með dempun í hæl og stöðugum hælkappa). Gott er að nota skó með upphækkun í hæl til að minnka álagið á sinina(innlegg eða gelpúði). Kæla skal sinina í hvert skipti sem að hún verður aum í endurhæfingarferlinu. Ef framfarir eru mjög hægar, ber að íhuga notkun bólgueyðandi lyfja eða sprauta bólgueyðandi sterum í kringun þykknunina á sininni.
Þegar sjúkraþjálfun og lyfjameðferð er fullreynd án árangurs, má beita skurðaðgerð.
Í 95 % tilfella lagast plantar fascitiis með minnkuðu álagi, sjúkraþjálfun og innleggjum ef um ranga stöðu í ökkla er að ræða.

Forvörn

Hlaupaskór þurfa að veita réttan stuðning og geta lélegir skór valdið auknu álagi á plantar fasciuna sem aftur getur leitt til bólgumyndunar. Röng ökklastaða, td. þegar fótur yfir prónerar (plattfóttur) og innri hluti iljarbogans fellur niður við gang og hlaup getur það valdið auknu álagi á sinina. Ef grunur um óeðlilega stöðu ökkla er að ræða ræða þarf að fara í göngugreiningu og laga það með innleggjum. Innlegg sem styðja við ristarbogann að innanverðu létta oft álagi á plantar fasciuna.
Nýlegar rannsóknir gefa einnig til kynna að stíf hásin geti aukið álagið á plantar fasciuna og því er mikilvægt að teygja hana vel.

Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.