Tennisolnbogi

Forsíða » Fræðsla » Íþróttameiðsli » Olnbogameiðsli » Tennisolnbogi (Epicondylitis lateralis)

Orsakir

Við síendurtekið, mikið og/eða rangt álag, geta myndast litlar rifur í vöðvafestunni sem geta valdið bólgu (sjá mynd). Ef bólga myndast í vöðvafestingu þá er það merki þess álagið sé of mikið á vöðvafestuna og ef ekki er dregið úr álaginu þá er hætta á “króniskum” bólgum sem erfitt er að meðhöndla.
Íþróttamönnum sem stunda „spaðasport“ mikið án þess að hafa tileinkað sér rétta sveiflu, rétt grip eða réttan útbúnað er hætt við að fá tennisolnboga, en tennisolnbogi getur líka komið til af annarskonar álagi.

Einkenni

Eymsli og verkir á utanverðum olnboga (þar sem beinið stendur út) sem versna ef viðkomandi spennir vöðvana (beygja úlnlið) í framhandlegg sem festast á epicondyl lateralis. Verkir aukast einnig við þreifingu og þegar teygt er á sömu vöðvum.

Bráðameðferð

Mikilvægt er að þekkja rétt viðbrögð við íþróttameiðslum – RICE meðferðin

Skoðun

Venjulega nægir almenn skoðun hjá lækni eða sjúkraþjálfara til að staðfesta greininguna, en ef um einhvern vafa er að ræða þá er ráðlegt að senda viðkomandi í ómskoðun sem getur staðfest bólgubreytingar í vöðvafestingunni. Langvarandi bólgur í sininni geta valdið skaða á beinhimnunni sem og kölkun í mjúkvefjunum í kring (svipað hælspora) sem er oft mjög erfitt að meðhöndla. Því er mikilvægt að leita til læknis eða sjúkraþjálfara ef einkennin hverfa ekki þegar dregið hefur verið úr álagi.

Meðferð

Fyrst þarf viðkomandi að láta skoða tæknina (sveifluna) sína með þjálfaranum sínum. Í öðru lagi þarf að ganga úr skugga um að spaðar, kylfur og grip henti viðkomandi iðkanda. Þessi atriði verða að vera í lagi til að endurhæfingin skili árangri og til að koma í veg fyrir endurtekin meiðsli.
Meðferðin saman stendur síðan af hvíld eða þá að dregið er úr álagi, vöðvateygjum ásamt styrktarþjálfun fyrir framhandleggsvöðva.
Mörgum finnst gott að nota teip eða sérstaka spelku sem er sett rétt fyrir neðan olnboga. Með þessu er komið í veg fyrir að vöðvarnir geti framkallað fullan kraft og þannig minnkar tog á vöðvafestur og verkurinn minnkar.
Ef þetta dugar ekki til er hægt að taka bólgueyðandi töflur eða fá bólgueyðandi sprautu í samvinnu við lækni.
Ef ekkert af því sem hér hefur verið nefnt virðist virka þá er neyðarúrræði að fara í skurðaðgerð. Útkoma skurðaðgerða er ekki 100% og ætti því ekki að huga að því nema að allt annað sé full reynt.

Hér er myndband með hugmyndum af æfingum sem gott er að gera þegar menn glíma við tennisolnboga.

 

Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.