Skip to main content



Frá 1.nóvember 2026 þarf ekki lengur tilvísun læknis til að njóta greiðsluþáttöku Sjúkratrygginga Íslands fyrir þjónustu sjúkraþjálfara.

* Þú getur leitað beint til sjúkraþjálfara og þarft ekki tilvísun frá lækni eftir 6 meðferðaskipti
* Sjúkraþjálfari metur vandann, meðferðaþörf og næstu skref


Breytingarnar marka mikilvægan áfanga í þróun sjúkraþjálfunar á Íslandi. Með afnámi tilvísanaskyldu er faglegt sjálfstæði stéttarinnar áréttað og skapast þar frekari tækifæri til að þróa þjónustuna áfram og styrkja hlutverk sjúkraþjálfunar innan heilbrigðiskerfisins. Breytingin þýðir að tilvísun læknis er ekki lengur forsenda greiðsluþátttöku hins opinbera í þjónustu sjúkraþjálfara. Áfram er lögð áhersla á öflugt samstarf og samvinnu allra heilbrigðisstétta.

Félag sjúkraþjálfara leggur áherslu á að nýta þessi tímamót til að efla faglega gagnaöflun og byggja þróun þjónustunnar á  traustum grunni. Slík gögn geta stutt við stefnumörkun og forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Markmiðið er að stuðla að snemmtækri íhlutun og réttri þjónustu á réttum stað, nýta fjármuni og minnka sóun innan heilbrigðiskerfisins í heild.

Sjúkraþjálfun er ekki eingöngu leið til að styðja fólk aftur til starfa eftir veikindi eða slys. Hún er lykilþáttur í að viðhalda færni, efla möguleika fólks á sjálfstæðri búsetu og draga úr líkum á örorku. Ávinningurinn nær því bæði til einstaklinga og samfélagsins alls: Með því að efla heilsu, færni og þátttöku fólks dregur sjúkraþjálfun einnig úr veikindafjarvistum og styður við öflugt atvinnulíf.

Afnám tilvísanaskyldu er þannig ekki aðeins mikilvægur áfangi fyrir sjúkraþjálfara heldur einnig tækifæri til að nýta fagþekkingu þeirra betur í þágu almennings. Félag sjúkraþjálfara fagnar þessu skrefi í átt að markvissari heilbrigðisþjónustu, þar sem faglegt sjálfstæði og ábyrg nýting fjármuna fara saman.