Samkvæmt reglugerð frá Heilbrigðisráðuneytinu verða frá og með 1. september 2026 innleidd sérstök komugjöld vegna þjónustu á sviði sjúkraþjálfunar.
Sjá nánar; Stjórnarráðið | Breytingar á komugjöldum https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/07/06/Breytingar-a-komugjoldum-i-heilsugaeslu-1.-agust/
Þessi hækkun rennur ekki til sjúkraþjálfara heldur er verið að draga úr kostnaðarþátttöku hins opinbera varðandi sjúkraþjálfun.
Sjúkraþjálfarar hafa fengið takmarkaðar upplýsingar um útfærslu á þessari framkvæmd og bendum þeim sem óska eftir nánari útskýringu á þessum gjörningi að leita til Sjúkratrygginga Íslands. https://island.is/s/sjukratryggingar
Sérstök komugjöld í þjálfun frá 1. september 2026
Samkvæmt reglugerð frá Heilbrigðisráðuneytinu verða frá og með 1. september 2026 innleidd sérstök komugjöld vegna þjónustu á sviði þjálfunar, þar á meðalsjúkraþjálfunar, talþjálfunar og iðjuþjálfunar.
Stjórnarráðið | Breytingar á komugjöldum https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/07/06/Breytingar-a-komugjoldum-i-heilsugaeslu-1.-agust/
Sérstaka komugjaldið leggst ofan á greiðslu samkvæmt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar. Gjaldið er utan afsláttarstofns og lækkar því ekki þótt fjöldi komu- eða meðferðartíma aukist.
Sama komugjald gildir fyrir styttri meðferðir, hóptíma, fjarþjálfun og almenna meðferðir.
Einstaklingar sem njóta 100% niðurgreiðslu vegna heimasjúkraþjálfunar greiða ekki sérstakt komugjald. Börn greiða ekki sérstakt komugjald.
Eftir að 67 ára aldri er náð teljast allir aldraðir einnig þeir sem áður voru öryrkjar. Einstaklingar sem eru á endurhæfingarlífeyri greiða það sama og öryrkjar. Þegar um slysmál sem samþykkt eru að Sjúkratryggingum er að ræða þá greiðir einstaklingur ekki komugjald.
Gjaldskrá
Hópur Sérstakt komugjald
Almennt sjúkratryggðir 1.500 kr.
Aldraðir 1.000 kr.
Öryrkjar 500 kr.
Börn yngri en 18 ára 0 kr.
Sérstaka komugjaldið birtist sem sérstakur gjaldaliður á reikningi. Í talþjálfun og iðjuþjálfun er hann nr 80 og í sjúkraþjálfun MU00000. Samanlögð greiðsla einstaklings samkvæmt greiðsluþátttökukerfi og sérstakt komugjald getur þó aldrei orðið hærri en
fullt gjald samkvæmt gildandi gjaldskrá. Ef reikningur er sendur án komugjalds kemur villuboð.
Dæmi
1)Ef einstaklingur sem er almennt sjúkratryggður sækir þjálfunartíma þar sem fullt gjald
samkvæmt gjaldskrá er 10.000 kr. og greiðsluhlutdeild hans samkvæmt
greiðsluþátttökukerfinu er 9.000 kr. miðað við 90% greiðsluþátttöku almennra , þá
verður sérstaka komugjaldið 1.000 kr. í stað 1.500 kr. Heildargreiðsla einstaklingsins
verður því aldrei hærri en fullt gjald tímans. Útreikningar af þessu tagi fara sjálfkrafa fram
í kerfum Sjúkratrygginga.
- Ef aldraður einstaklingur sækir þjálfunartíma þar sem fullt gjald er samkvæmt
gjaldskrá 10.000 kr og greiðsluhlutdeild hans samkvæmt stöðu hans í
greiðsluþátttökukerfinu er 4000 þá greiðir hann auk þess 1000 króna komugjald og
niðurgreiðsla Sjúkratrygginga verður 5000 krónur en var áður 6000 krónur.
Þjónustuveitandi heldur eftir komugjaldinu en greiðslur frá Sjúkratryggingum lækka sem
samsvarar komugjaldinu. Heildargreiðslur til þjónustuveitenda eru þær sömu og áður
en greiðslur þjónustuþega hækkar.
