Rannsókn, sem gerð var á vegum læknadeildar Kólumbíuháskóla í Bandaríkjunum bendir til þess, að unglingum, sem fá ekki nægan svefn, sé hættara við að fá þunglyndi en þeir sem sofa vel og lengi.
„Niðurstöður okkar samræmast þeirri kenningu, að skortur á svefni sé áhættuþáttur í þinglyndi og stuðli ásamt öðrum áhættuþáttum í flóknu samspili að þessari geðröskun,“ sagði James Gangwisch, sem stýrði rannsókninni í grein sem birtist í tímaritinu Sleep í gær.
„Nægur og góður svefn getur því verið fyrirbyggjandi aðgerð gegn þunglyndi og einnig meðhöndlun,“ bætti hann við.
Í rannsókninni var fylgst með svefnvenjum 15.659 menntaskóla- og háskólanemum. Niðurstaðan var sú, að þeim sem jafnan fóru að sofa eftir miðnætti var 24% hættara við að fá þunglyndi en þeir sem fóru að sofa fyrir 10 á kvöldin.
Þá er 20% meiri hætta á að nátthrafnarnir þurfi að fást við sjálfsmorðshugsanir.
Bandaríska svefnrannsóknastofnunin mælir með því, að unglingar sofi að minnsta kosti 9 stundir á nóttu. Þeir sem fóru að sofa fyrir klukkan 22 sváfu að jafnaði 8 stundir og 10 mínútur en þeir sem sofnuðu eftir miðnætti fengu mun minni svefn.
Unglingar sem sváfu 5 stundir eða minna voru 71% líklegri en aðrir til að fá þunglyndi.
tekið af vef mbl.is þ.2.1.2010