Skip to main content

Þessa dagana er átak í að benda á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki og er því einkum beint að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra. Skilaboðin, undir slagorðinu Hættan er ljós, eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð. Viðhorfskönnun til banns við ljósabekkjanotkun ungmenna sýnir að mikill meirihluti er með slíku banni.

Þetta er sjöunda árið sem farið er í þessa fræðsluherferð og „Hættan er ljós“ auglýsingar verða eins og áður birtar í dagblöðum og á vefsíðum, m.a. Facebook, auk þess sem fjallað verður um málið.

Vakin er athygli á því að börn og unglingar eru næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mikið á síðustu áratugum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára.
Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali  50 manns á ári með sortuæxli í húð, 60 með önnur húðæxli og um 225 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Á allra síðustu árum hefur heldur dregið úr tíðninni. Ár hvert deyja að meðaltali níu Íslendingar úr sortuæxlum í húð.

Á að banna að börn og unglingar noti ljósabekki?
Foreldrar og aðrir forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að fara að tilmælum alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki. Nýlega hafa verið settar fram tillögur á norrænum vettvangi um að banna þeim sem eru yngri en átján ára að fara í ljós. Slíkt bann hefur þegar tekið gildi í nokkrum löndum, m.a. Skotlandi. Capacent-Gallup var fengið til að gera viðhorfskönnun hér á landi til þessa máls og sýndi hún að mikill meirihluti er fylgjandi slíku banni.

Lesa skýrslu um viðhorfskönnunina
Fræðsluefni Krabbameinsfélagsins – Sortuæxli í húð

Tekið af www.lydheilsustod.is

Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu ár hefur dregið úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni. Leitað verður til presta landsins um að leggja málefninu lið, eins og undanfarin ár.