Hásinarbólga
Orsakir
Hásinin er stærsta og öflugasta sin líkamans. Tveir stærstu kálfavöðvarnir (gastrochnemius, og soleus) mynda sameiginlega sin, hásinina.
Hásinin tengist svo á hælbeininu (calcaneus). Veikasti hluti hásinarinnar er u.þ.b. 3 cm ofan við festuna á hælbeininu.
Við síendurtekið, mikið og/eða rangt álag, getur myndast bólga í hásininni. Hásinarbólga kemur yfirleitt smám saman og líkurnar á því að fá hásinarbólgu aukast með aldrinum.
Einkenni
Verkur við álag á hásinina (hlaup og hopp), þegar þreifað er á henni eða þegar hún er teygð.
Verkurinn eykst við álag og oft er sinin mjög stíf fyrst á morgnana. Oft er hægt að finna þykknun í sininni u.þ.b. tveimur fingurbreiddum fyrir ofan hælbeinið og er staðurinn þá mjög snertiaumur. Teygjanleiki hásinarinnar minnkar þegar hún er bólgin og eru auknar líkur á hásinarsliti við áframhaldandi íþróttaiðkun.
Bráðameðferð
Mikilvægt er að þekkja rétt viðbrögð við íþróttameiðslum – RICE meðferðin.
Skoðun
Við væg einkenni á byrjunarstigi, sem koma smám saman og versna ekki skyndilega, er ekki nauðsynlegt að leita til læknis. Í tilfellum þar sem einstaklingurinn finnur smell eða skyndilegan sársauka í hásininni skal leita strax til læknis eða sjúkraþjálfara til að útiloka slit á hásin (eða hluta hennar) eða slit á soleus vöðvanum.
Ef ekki er jafn og stöðugur bati í endurhæfingu, ætti viðkomandi að fara í ómskoðun. Í ómskoðun er hægt að meta hversu alvarleg og hvers eðlis meiðslin eru: bólga í sininni (tendinitis), örvefsmyndun í sininni (tendinosis), kölkun í sininni, bólga í sinaslíðrinu sem umlykur hásinina (peritendinitis), slímsekkjarbólga (bursitis), sem og rifur og slit að hluta til í sininni.
Meðferð
Ef viðkomandi leitar sér fljótt hjálpar hjá sjúkraþjálfara, getur hann náð sér á nokkrum vikum. Hafi verkurinn hefur verið til staðar í marga mánuði og ef ómskoðun leiðir í ljós þykknun og breytingar í sininni, getur endurhæfingin tekið nokkra mánuði (2-6 mánuði).
Sjúkraþjálfun flýtir fyrir og hafa rannsóknir sýnt að leggja eigi mikla áherslu á eccentrískar æfingar til að flýta fyrir bata og styrkja sinina. (sjá myndband).
Mikilvægt er að skóbúnaður sé í lagi (td. góðir hlaupaskór með dempun í hæl og stöðugum hælkappa). Gott er að nota skó með upphækkun í hæl til að minnka álagið á hásinina (innlegg eða gelpúði). Kæla skal sinina í hvert skipti sem hún verður aum í endurhæfingarferlinu. Ef framfarir eru mjög hægar, má íhuga notkun bólgueyðandi lyfja eða sprauta bólgueyðandi steralyfjum í kringun þykknunina á sininni.
Þegar sjúkraþjálfun og lyfjameðferð er fullreynd án árangurs, má beita skurðaðgerð.
Forvörn
Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.