Koffínneysla unglinga í efstu bekkjum grunnskóla hér á landi er töluverð. Þannig segjast yfir 75 prósent unglinga í 9. og 10. bekk grunnskóla neyta koffíns á degi hverjum, yfirleitt í formi orkudrykkja en líka kóladrykkja á borð við Pepsi og Coca Cola sem innihalda koffín.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri rannsókn sem Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík gerðu í grunnskólum landsins í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið á vormánuðum 2009.
Yfir 7.000 unglingar tóku þátt í könnuninni og eru niðurstöðurnar birtar í vísindatímaritinu Journal of Adolescence.
Rannsóknin leiðir í ljós að mjög sterkt samband er á milli koffínneyslu og reykinga og áfengisneyslu íslenskra unglinga, segir Álfgeir Logi Kristjánsson, doktor í félagslækningum við Columbiaháskóla í New York, sem hafði umsjón með rannsókninni ásamt Ingu Dóru Sigfúsdóttur, prófessor við Columbia-háskóla, og Jack E. James, prófessor við Háskólann í Reykjavík.
„Áhrif koffínneyslu eru meiri en okkur grunaði og mjög og óvenju sterk tengsl eru á milli koffínneyslu og neyslu vímuefna, svo sem tóbaks og áfengis,“ segir Álfgeir, en niðurstöður rannsóknarinnar sýna meðal annars að 93 prósent þeirra sem nota koffín daglega bæði reykja daglega og hafa orðið ölvuð síðastliðna 30 daga. „Á síðustu árum hefur neysla koffíndrykkja í bland við áfengi aukist mjög. Við vitum að vinsælt er í skemmtanahaldi ungs fólks að nota saman orkudrykki eins og Magic og Red Bull og sterkt áfengi en vitum minna um áhrifin þótt áhrif áfengis séu þekkt.”
Þá kemur fram að unglingar sem nota mikið koffín eru líklegri til að eiga við svefn- og námsörðugleika að stríða, segir hann. „Krakkar á þessum aldri eru hvorki með fullþroskaðan líkama né heila og kóla- eða orkudrykkirnir sem þeir neyta hafa örvandi áhrif þannig að þau geta átt erfitt með að sofna á kvöldin, eru þar af leiðandi þreytt og hafa meiri tilhneigingu til að sofna á daginn.
Saman hafa þessir þættir, koffínneysla, reykingar og áfengisdrykkja, neikvæð áhrif á námsframmistöðu. Mikil koffínneysla hefur enn fremur neikvæð áhrif á frammistöðuna umfram vímuefnanotkun.“
Álfgeir segir þetta fyrstu velferðarrannsóknina gerða hérlendis sem taki sérstakt tillit til koffínneyslu unglinga. „Hingað til hafa líkamleg áhrif koffínneyslu á fullorðna yfirleitt verið skoðuð. Mjög fáar rannsóknir hafa tekið tillit til hegðunar, líðanar eða frammistöðuþátta af völdum koffíns. Engin hefur tekið fyrir koffínneyslu ungmenna. Þessi rannsókn sýnir svo ekki verður um villst hversu nauðsynlegt er að taka koffín með í reikninginn, sérstaklega þar sem enn er margt á huldu.
tekið af www. frettabladis.is þ. 16.2.2011