Skip to main content

Ráðstefna haldin á Grand Hótel 27.september 2024.

Myasthenia Gravis (MG / Vöðvaslensfár) er sjaldgæfur sjálfsofnæmissjúkdómur í taugavöðvamótum
sem veldur sveiflukenndu vöðvakraftleysi og þreytu sem hefur víðtæk áhrif á lífsgæði fólks.

Ýmis meðferðarúrræði eru þekkt en þegar um er að ræða svo fátíðan sjúkdóm er almenn þekking og reynsla fagfólks óhjákvæmilega takmörkuð.

MG félagið vill með þessari ráðstefnu breiða út og auka þekkingu á sjúkdómnum.

Sjö af fremstu sérfræðingum Norðurlandanna í MG munu halda erindi um sitt sérsvið.
Flest þeirra eru höfundar leiðbeininga um meðferð við MG sem kom út í febrúar síðastliðnum.
Dagskráin er þannig saman sett að hún mun nýtast bæði þeim sem þekkja MG og jafnframt þeim sem þekkja MG og jafnframt þeim sem vita minna.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara og aðra sem hafa
áhuga á nýjustu þekkingu á MG sjúkdómnum.