Megrunarlausi dagurinn (International No Diet Day) er alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og fordómum vegna holdafars. Árið 1992 stofnaði Mary Evans Young, fyrrum sjálfsveltisjúklingur, International No Diet Day til þess að vekja athygli á skaðlegum áhrifum útlitsdýrkunar og mismununar í garð þeirra sem falla utan hins viðurkennda ramma um æskilegan líkamsvöxt. Síðan þá hefur skipulögð dagskrá verið haldin víða um heim árlega þann 6. maí til þess að vekja athygli á þjáningum sem hljótast af þráhyggju um grannan vöxt og almennri andúð á fitu. Á þessum degi eru allir hvattir til þess að láta af viðleitni sinni til þess að grennast, þó ekki væri nema í einn dag, og leyfa sér að upplifa fegurð og fjölbreytileika mismunandi líkamsvaxtar. Sjá fyrir sér veröld þar sem megrun er ekki til, þar sem hvers kyns líkamsvöxtur getur verið tákn um hreysti og fegurð og mismunun vegna holdarfars þekkist ekki.
Á þessum degi viljum við:
* fagna margbreytilegum líkamsvexti af öllum stærðum og gerðum
* minna á rétt ALLRA til heilbrigðis, hamingju og velferðar óháð líkamsvexti
* lýsa yfir opinberum frídegi frá hugsunum um mat, megrun og líkamsvöxt
* vekja athygli á lítt þekktum staðreyndum um megrun, heilsu og holdafar
* minna á hvernig megrun og stöðug krafa um grannan vöxt er samfélagsleg atlaga gegn konum
* minnast fórnarlamba átraskana og hættulegra megrunaraðferða
* berjast gegn andúð á líkamsfitu og fordómum vegna vaxtarlags.
Heilsa óháð holdafari (Health At Every Size):
* Að bæta heilsu?áhersla á tilfinningalega, líkamlega og andlega velferð án áherslu á þyngdartap eða ?kjörþyngd?.
* Að bæta sjálfs- og líkamsmynd?að bera virðingu fyrir dásamlegum fjölbreytileika líkamsvaxtar í stað þess að keppa að hinni ?réttu? þyngd eða líkamslögun.
* Að njóta þess að borða?að borða samkvæmt innri merkjum hungurs og saðningar, matarlystar og næringarþarfar hvers og eins í stað þess að fylgja utanaðkomandi matarplönum, reglum, boðum og bönnum.
* Að njóta þess að hreyfa líkamann?að stunda reglulega og ánægjulega hreyfingu sem eykur lífsþrótt, hreysti og vellíðan í stað þess að hreyfa sig fyrst og fremst í þeim tilgangi að grennast eða halda kjörþyngd.
* Að sporna gegn fitufordómum?að gera sér grein fyrir því að líkamsstærð og þyngd segja ekkert um matarvenjur, hreyfingu, persónuleika eða mannkosti fólks. Fegurð og manngildi koma fyrir í öllum stærðum og gerðum.
sjá nánar á http://líkamsvirðing.is/