Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2011, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land.
Hjólað í vinnuna rúllar af stað miðvikudaginn 4.maí og stendur yfir í þrjár vikur eða til þriðjudagsins 24. maí. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir þeir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem taka strætó geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin er til og frá stoppistöð.
Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu „Hjólað í vinnuna“. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir þeir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem taka strætó geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin er til og frá stoppistöð.
Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast þau sjö ár sem verkefnið hefur farið fram (hér í töflunni fyrir neðan má sjá samanburð á milli ára). Hjólað í vinnuna rúllar af stað miðvikudaginn 4.maí og stendur yfir í þrjár vikur eða til þriðjudagsins 24. maí.
Vefsíðan www.hjoladivinnuna.is gegnir mjög mikilvægu hlutverki þar sem þátttakendur hafa aðgang að ýmsum fróðleik, upplýsingum um sjálfa keppnina, úrslitum og styrktaraðila.
Öryggið í fyrirrúmi
Hver þátttakandi ber ábyrgð á sínu öryggi. Við hvetjum hjólagarpa og línuskautafólk til að nota hjálma og aðrar varnir og að sjálfsögðu að fara eftir umferðarlögum.
Öflug og kát liðsheild skilar árangri
Hjólað í vinnuna er gott tækifæri til að auka samheldni og heilbrigði starfsmanna. Hér er að finna frekari hugmyndir og hvatningu til að virkja vinnufélagana með. Til að gera keppnina enn skemmtilegri er tilvalið að skora á aðrar deildir, vinnustaði, samkeppnisaðila, sveitarfélög í heilbrigða samkeppni.