Skip to main content

Göngum í skólann er hluti af verkefninu „Virkar og öruggar leiðir í skólann“ sem nýtur stuðnings Go for Green og samstarfsaðila.

Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims.

Októbermánuður er ,,göngum í skólann“ mánuður!

Í októbermánuði, ár hvert, eru börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og frá skóla. Vegna aðstæðna hérlendis hefur undirbúningshópur verkefnisins ákveðið að hvetja skóla til að byrja verkefnið í september og ljúka því á alþjóðlega göngum í skólann deginum í byrjun október. Markmið verkefnisins eru meðal annars að:

  • Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
  • Heilbrigður lífsstíll fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
  • Minni umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi.
  • Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst.
  • Kennir reglur um öryggi á göngu og hjóli:
    sjá nánar á  www.lydheilsustod.is