Æfingar fyrir íþróttamenn með náraverki
Orsakir
Mikilvægt er að taka nárameiðsli alvarlega frá byrjun. Meiðsli í náravöðvum (adductors) geta orðið mjög langvarandi og erfið viðgangs ef ekki er farið rétt að. Best er að taka sér hvíld frá íþróttum meðan að nárinn er að jafna sig og ná fullum styrk.
Við nárameiðsli er mjög mikilvægt að teygja mjaðmarbeygjuvöðvann (iliopsoas). Gera þarf æfinguna rétt, þe. án þess að fetta sig í mjóbaki.
Haldið teygjunni í 30 sekúndur og teygið 3 sinnum hvorn fót. Einnig ber að teygja eftirfarandi vöðva: magavöðva, framanlæris vöðva, aftanlærisvöðva og kálfavöðva.
ATH! Ekki skal teygja náravöðvana meðan á þessum prógrammi stendur. Fyrst eftir að einkennin eru horfin, má fara að teygja á náravöðvunum en muna að byrja rólega.
Mikilvægt að gera sér grein fyrir því að það tekur tíma að ná sér að fullu aftur. Hér eru engar flýtileiðir eða kraftaverk í boði!
Æfingar 1-8 á að gera fyrstu 2 vikurnar
Æfing #7
Stattu með þann fót sem á að þjálfa á „glide bretti“ eða sleipu gólfi og snúðu hliðinni að. Færðu þungann rólega á fótinn og renndu honum rólega út til hliðar og svo til baka aftur. Gerðu þessa æfingu til skiptis með hvorum fæti, hafðu sokk á þeim fæti sem þjálfa skal og gerðu æfingarnar innan sársaukamarka.
Hvorn fót skal þjálfa í 1 mínútu í einu og í 5 settum. Stutt hlé á milli setta.
Æfing #8
Stattu með þann fót (snúðu honum 90°) sem á að þjálfa á „glide bretti“ eða sleipu gólfi og snúðu hliðinni að. Færðu þungann rólega á fótinn og renndu honum hægt út til hliðar og svo til baka aftur. Gerðu þessa æfingu til skiptis með hvorum fæti, muna að hafa sokk á þeim fæti sem þjálfa skal og gerðu æfingarnar innan sársaukamarka.
Hvorn fót skal þjálfa í 1 mínútu í einu og í 5 settum. Stutt hlé á milli setta.
Æfing #16
Renndu þér til hliðar á „glide bretti“ eða á sleipu gólfi. Byrja skal með stutt rennsli og lengja það svo rólega.
Gerðu þessa æfingu í 1 mínútu í senn og í 5 settum. Stutt hlé á milli setta.
Efni á aflid.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar. Upplýsingar á aflid.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, lækna eða annars fagfólks.