Skip to main content

Sjúkraþjálfun AFL lætur sitt ekki eftir liggja til að styrkja gott málefni og sendir 2 fulltrúa til að aðstoða IFC (Íþróttafélagið Carl) sem á fyrir höndum hörkuleik í 32-liða úrslitum VISA bikarsins gegn núverandi Íslandsmeisturum FH. Veigur Sveinsson mun hlaupa og djöflast um allan völl en Stefán Pétursson mun sitja á varamannabekknum og skokka inná þegar menn meiðast og gefa þeim vatn. IFC ætlar að láta allan sinn ágóða af leiknum renna til Umhyggju og vonumst við til að sjá sem flesta. ÁFRAM CARL!!!