Sjúkraþjálfun AFL sendi að sjálfsögðu fulltrúa sinn í Reykjavíkurmaraþonið. Mikil samkeppni var innan fyrirtækisins um laust sæti í maraþoninu sem endaði með því að Rúnar M. Ragnarsson varð fyrir valinu þar sem að hann var búinn að standa sig manna best í Powerade hlaupunum undanfarið. Rúnar hljóp þetta mjög létt og áreynslulaust og var fyrirtækinu til mikils sóma.