Miðvikudaginn s.l. fóru AFL menn ásamt velunnurum stöðvarinnar í bogfimi hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík. Ingi bogfimileiðbeinandi tók vel á móti okkur og fór yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga við bogfimi. Síðan var farið í íþróttasalinn og skotið í mark. Sumir voru betri en aðrir en enginn slasaðist þó. Þetta var bæði áhugavert sem og skemmtilegt og þökkum við Inga kærlega fyrir að umbera okkur.